D hópar

D hópur æfir 2x í viku en hefur kost á að bæta við sig VALtímum.
VAL-tímar sem eru í boði fyrir D hópa eru:
-Musical Theatre
-Commercial
-Tækni
Hægt er að lesa nánar um þessa tíma undir “VAL-tímar” hér að ofan.
Grunn viðmið fyrir D hópa:
*Markmiðin í tímunum eru einstaklingsmiðuð og miðast alltaf við fyrri reynslu nemenda.
-Að nemandi upplifi dansgleði
-Að nemandi læri réttar líkamsstöður og líkamsbeitingu í tækniæfingum.
-Að nemandi læri samhæfingu líkamshluta
-Að nemendur læri að hlusta á og fylgja takti.
-Að nemandi öðlist líkamsstyrk og liðleika
-Að nemandi læri leikræna tjáningu í dansi og læri að nota dansinn sem list- og tjáningaform
-Að nemendur læri að vera skapandi
-Að nemandi öðlist skilning á og fái tilfinningu fyrir tækniæfingum.
-Að nemenda líði vel í tímum og upplifi sjálfsöryggi
-Að nemandi þroskist og vaxi í náminu
Mikil áhersla er lögð á jákvæðar og uppbyggilegar kennsluaðferðir.
Klæðnaður í tíma:
-Þröng föt sem gott er að hreyfa sig í, t.d. leggings og þröngur bolur eða ballettbolur og leggings.
-Hárið er greitt upp í teygju frá andlitinu.
-Nemendur hafa val um hvort þau séu á tánum, sokkum eða í tásugrifflum.

Haustönn endar glæsilegri sýningu í hátíðarsýningu í Hofi.
