Level Up prógram DSA

LEVEL UP PRÓGRAM DSA

“Level up” er hæfileikamótunarprógram DSA fyrir nemendur á aldrinum 10 – 15 ára (C1, C2, B og A2 hópar)

Level up hentar áhugasömum nemendum sem vilja æfa meira, vaxa hraðar og fá auknar áskoranir í dansnáminu sínu. Prógramið er t.d. tilvalið fyrir nemendur sem setja stefnuna á að komast í keppnisliðið.

Nemendur í Level up prógraminu æfa að lágmarki samtals 6x í viku þ.e:

– 2x í viku í sínum Heimahóp
– 2x í viku með Level up hópnum
– 1x í viku TækniVAL
– VALtími að eigin vali 1x 1 klst. á viku

Nemendur geta svo bætt við sig fleiri valtímum utan prógramsins að eigin vali ef þau vilja.

Í level up tímunum verður áherslan mikið til á flóknari dansrútínur, framkomu og túlkun bæði í gegnum dans og leiklist ásamt söng.

Prógramið er kennt í lotum.

Teknir verða fyrir mismunandi dansstílar, búin til atriði og nemendum einnig sett fyrir heimavinna annað slagið sem þau koma með í tíma. 

Loturnar enda allar með ákveðinni uppskeru s.s. video-i, foreldrasýningu og hátíðarsýningu.

Nemendur í Level up fá einnig sérmerktan bol sem er innifalinn í verði námskeiðsins.
Ætlast er til að nemendur klæðist bolnum í tíma ásamt svörtum leggings eða svörtum stuttbuxum.

Kennarar Level Up
Eydís Gauja: – Level up Tímar 2x 1 klst á viku
Unnur Anna: – Tækni
Gestakennarar: Greta Salóme, Katrín Mist og fleiri.

Verð fyrir Level up prógramið fer eftir heimahóp barnsins:
C1, C2 og B = 127.700kr
A2 = 142.700kr.

Level up hópur DSA haustið 2021 ásamt
Guðnýju Ósk sem var yfirkennari hópsins það árið.