A2 hópur


Skrá mig í A2

A2 hópur æfir 2x í viku 1,5 klst í senn.

Nemendur í A2 hóp geta einnig bætt við sig VALtímum.
Valtímar sem eru í boði á haustönn 2026 eru:

-Tækni
-Commercial

-DSA heilsa VAL
Þrek VAL


Klæðnaður í tíma: Svartur ballettbolur og svartar leggings. Gott er að hafa með sér svarta langermapeysu/bol líka fyrir gólfæfingar.
Hárið greitt upp í snúð og frá andlitinu. Nemendur hafa val um hvort þau séu á tásunum, sokkunum eða í tásugrifflum.

Grunn viðmið fyrir A2 hóp:
*Markmiðin í tímunum eru einstaklingsmiðuð og miðast alltaf við fyrri reynslu nemenda.

-Að nemandi upplifi dansgleði
-Að nemandi læri réttar líkamsstöður og líkamsbeitingu í tækniæfingum.
-Að nemandi öðlist líkamsstyrk og liðleika
-Að nemandi læri leikræna tjáningu í dansi og læri að nota dansinn sem list- og tjáningaform
-Að nemendi læri að vera skapandi og geti sjálfur sett saman rútínur
-Að nemendi læri á hvernig líkaminn hreyfist, hvaða vöðva við notum í framkvæmd einfaldari og flóknari æfinga
-Að nemandi öðlist sjálfsöruggi til að geta tekið þátt í spunaæfingum
-Að nemandi öðlist skilning á og fái tilfinningu fyrir grunn- og flóknari tækniæfingum
-Að nemenda líði vel í tímum og upplifi sjálfsöryggi
-Að nemandi þroskist og vaxi í náminu

Mikil áhersla er lögð á sjálfstyrkingu og uppbyggilegar kennsluaðferðir.