14 ára og eldri (9.bekkur og uppúr) tilheyra A hóp

A hópur æfir 4x í viku í 1,5-1,45 klst í senn.
Á haustönn 2020 eru þessir tímar í töflunni hjá A hóp.
-Jazz/Modern/Tækni 2x í viku
-Ballett 1x í viku
-Nútímadans og Kóreografía 1x í viku
Grunn viðmið fyrir A hóp:
*Markmiðin í tímunum eru einstaklingsmiðuð og miðast alltaf við fyrri reynslu nemenda.
-Að nemandi upplifi dansgleði
-Að nemandi læri réttar líkamsstöður og líkamsbeitingu í tækniæfingum.
-Að nemandi öðlist líkamsstyrk og liðleika
-Að nemandi læri leikræna tjáningu í dansi og læri að nota dansinn sem list- og tjáningaform
-Að nemendi læri að vera skapandi og geti sjálfur sett saman rútínur
-Að nemendi læri á hvernig líkaminn hreyfist, hvaða vöðva við notum í framkvæmd einfaldari og flóknari æfinga
-Að nemandi öðlist sjálfsöruggi til að geta tekið þátt í spunaæfingum
-Að nemandi öðlist skilning á og fái tilfinningu fyrir grunn- og flóknari tækniæfingum
-Að nemenda líði vel í tímum og upplifi sjálfsöryggi
-Að nemandi þroskist og vaxi í náminu
Mikil áhersla er lögð á jákvæðar og uppbyggilegar kennsluaðferðir.
Klæðnaður í tíma: Svartur ballettbolur og svartar leggings. Gott er að hafa með sér svarta langermapeysu/bol líka fyrir gólfæfingar.
Hárið greitt upp í snúð og frá andlitinu. Nemendur hafa val um hvort þau séu á tásunum, sokkunum eða í tásugrifflum.
*Gott er að eiga hnéhlífar en ekki skylda.
Í lok haustannar er hver hópur með sína eigin 30 mín sýningu þar sem nemendur fá æfingu í að koma fram og sýna brot úr hefðbundnum tíma og hvað þau hafa verið að gera, ásamt því að sýna dansa sem þau hafa lært yfir önnina.
Vorönn endar svo á glæsilegri sýningu Í Hofi í maí