“Level up” er hæfileikamótunarprógram DSA fyrir nemendur á aldrinum 8-11 ára (D, C3 og C2 hóp).
Level up hentar áhugasömum nemendum sem vilja æfa meira, vaxa hraðar og fá auknar áskoranir í dansnáminu sínu. Prógramið er t.d. tilvalið fyrir nemendur sem setja stefnuna á að komast í keppnisliðið.
Nemendur í Level up prógraminu æfa að lágmarki samtals 6x í viku þ.e:
– 2x í viku í sínum heimahóp
– 2x í viku með Level up hópnum
– 1x í viku ballettval
– VALtími að eigin vali 1x 1 klst. á viku
Nemendur geta svo bætt við sig fleiri valtímum utan prógramsins að eigin vali ef þau vilja.
Í level up tímunum verður áherslan mikið til á flóknari dansrútínur, framkomu og túlkun bæði í gegnum dans og leiklist ásamt söng.
Prógramið er kennt í lotum.
Teknir verða fyrir mismunandi dansstílar, búin til atriði og nemendum einnig sett fyrir heimavinna annað slagið sem þau koma með í tíma.
Loturnar enda allar með ákveðinni uppskeru s.s. video-i, foreldrasýningu og vorsýningu.
Nemendur í Level up fá einnig sérmerktan ballettbol sem er innifalinn í verði námskeiðsins.
Ætlast er til að nemendur klæðist bolnum í tíma ásamt svörtum leggings.
Nánari upplýsingar um kennsluáætlun Level up prógramsins er hægt að nálgast með því að senda tölvupóst á [email protected]
Kennarar Level up vorið 2024 verða:
Eydís Gauja – Level up tímar 2x 1 klst á viku
Eydís Gauja – Ballett 60mín 1x í viku
Gestakennarar á haustönn eru Chantelle Carey og Katrín Mist
Verð fyrir vorönn 2025: 114.100kr
Takmarkað pláss er í hópinn og tekið er inn eftir umsóknum.
Umsóknarfrestur er til 8.janúar 2025.
Level up hópur DSA haustið 2021 ásamt
Guðnýju Ósk sem var yfirkennari hópsins það árið.

