Level up extreme 14+

“Level up Extreme” er hæfileikamótunarprógram DSA fyrir eldri nemendur 14+.

Level up hentar áhugasömum og metnaðarfullum nemendum sem vilja æfa meira, vaxa hraðar og fá auknar áskoranir í dansnáminu sínu. 

Í Level up Extreme munu þau fá þjálfun í fjölbreyttum dansstílum og verður áhersla á dans, tjáningu og performance.

Nemendur æfa 8 klst. á viku tímarnir skiptast niður á eftirfarandi tíma:
-Heimahópur 2x 1,5 klst á viku (fer eftir heimahóp)
-Level up Extreme 2x 1 klst á viku
-Þrek 1x 1 klst. á viku
-VALtími að eigin vali 1x 1 klst. á viku
-VALtími að eigin vali 1x 1 klst. á viku
Nemendur geta svo bætt við sig fleiri valtímum utan prógramsins að eigin vali ef þau vilja.

VALtímar sem eru í boði sem frjáls val eða auka val eru:
-Musical Theatre
-Tækni (hringir, stökk og liðleiki)
-Fimleikar fyrir dansara

Í Level up Extreme tímum verður unnið í lotum, hver lota er 4 vikur og er fókusinn settur á einn dansstíl í hverri lotu.

Teknir verða fyrir mismunandi dansstílar, búin til atriði og nemendum einnig sett fyrir heimavinna annað slagið sem þau koma með tíma. Hver lota endar á uppskeru svo sem dansvideo-i, foreldra sýningu og svo vorsýningunni.

Nemendur í Level up fá einnig sérmerktan ballettbol sem er innifalinn í verði námskeiðsins.
Ætlast er til að nemendur klæðist bolnum í tíma ásamt svörtum leggings.

Takmarkað pláss er í hópinn og tekið er inn eftir umsóknum.
Umsókn í Level up prógram 2024 má senda á [email protected] merkt Level up Extreme.


Nánari upplýsingar um kennsluáætlun Level up prógramsins er hægt að nálgast með því að senda tölvupóst á [email protected]

Kennarar Level up Extreme haustið 2024 verða:
Ingibjörg Rún – Level up tímar 2x 1 klst á viku
Marsibil – Þrek tími 1x 1 klst í viku
Heimahópskennari A hóps er Unnur Anna

Verð á Level up Extreme er 123.600kr.
Boðið er upp á greiðsludreyfingu.