
Kenndar eru gólf- og acro æfingar ásamt stökkum sem nýtast dönsurum. Einnig verða teknar fyrir styrktar og liðleikaæfingar sem hjálpa nemendum að ná betri árangri í æfingunum.
Fimleikatíminn er í boði fyrir alla heimahópa.
Nemendum er skipt upp í 2 hópa eftir aldri. E2, E1, D1 og D2 saman og C1,C2, B, A1 og A2 saman.

Klæðnaður: Þröng föt, t.d. hjólabuxur og þröngur bolur eða fimleikabolur. Hárið greitt upp í teygju frá andlitinu og á tánum.

